Noregur vann sannfærandi útisigur á Albaníu, 5:0, í undanúrslitum umspils Evrópumóts kvenna í fótbolta í dag.
Þær Guro Bergsvand og Ada Hegerberg skoruðu tvö mörk hvor fyrir Noreg og Frida Maanum komst einnig á blað.
Er norska liðið því komið með annan fótinn í úrslit umspilsins en seinni leikurinn við Albaníu verður í Osló á þriðjudag.
Ísland hefur þegar tryggt sér sæti á lokamóti EM sem fram fer næsta sumar í Sviss.
Önnur úrslit leikjanna sem eru búnir í dag:
Aserbaídsjan 1:4 Portúgal
Bosnía 2:2 Serbía
Svartfjallaland 0:1 Finnland
Tyrkland 1:1 Úkraína
Slóvakía 2:1 Wales.