Barcelona fór illa með Real Madrid í svokallaða „El Classico“ 1. deild karla í knattspyrnu á Spáni í kvöld en leikurinn endaði 4:0 á Santiago Bernabéu.
Barcelona er með sex stiga forskot á toppi deildarinnar með 30 stig og Real er í öðru sæti með 24 stig.
Markalaust var í hálfleik en á 30. mínútu setti Kylian Mbappé boltann í netið en það var dæmt af vegna rangstöðu eftir VAR skoðun.
Robert Lewandowski skoraði tvö mörk á tveimur mínútum í upphafi seinni hálfleiks og gat fullkomnað þrennuna en skaut í slána á 67. mínútu.
Lamine Yamal bætti við þriðja á 77. mínútu en hann er yngsti leikmaður til þess að skora í stórleiknum „El Classico“ en hann er 17 ára og 106 daga gamall.
Raphina skoraði svo fjórða mark Barcelona á 84. mínútu og leikurinn endaði 4:0 fyrir Barcelona.