Hertha Berlin hafði betur gegn Karlsruher, 3:1, í þýsku B-deildinni í knattspyrnu karla í Karlsruhe í dag.
Landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði Herthu en fór af velli í hálfleik.
Hertha er í fimmta sæti deildarinnar með 17 stig, þremur stigum frá toppnum.