Knattspyrnumaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði í 4:3-tapi Fortuna Düsseldorf gegn Kaiserslautern á heimavelli í þýsku B-deildinni í kvöld.
Düsseldorf er þrátt fyrir tapið á toppi deildarinnar með 20 stig eftir 10 leiki.
Daniel Hanslik kom Kaiserslautern yfir en Ísak jafnaði metin á 35. mínútu eftir vítaspyrnu. Düsseldorf komst svo yfir í upphafi seinni hálfleiks en Daisuke Yokota, Ragnar Ache og Daniel Hanslik skoruðu þrjú mörk á 10 mínútna kafla í seinni hálfleik
Ísak lagði síðan upp síðasta mark leíksins fyrir Felix Klaus í uppbótartíma og leikurinn endaði 4:3.
Ísak lék allan leikinn en Valgeir Lunddal Friðriksson var ekki með Düsseldorf vegna meiðsla.