Fiorentina fór afar illa með Roma, 5:1, í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu karla í gærkvöldi.
Fioretina er komið í fjórða sæti deildarinnar með 16 stig en liðið hefur nú unnið fimm síðustu leiki sína í öllum keppnum eftir brösuglega byrjun.
Albert Guðmundsson meiddist í síðasta deildarleik og verður ekkert með næstu vikurnar, en hann kom afar sterkur inn í byrjun sigurgöngu Fiorentina.