Brasilíski knattspyrnumaðurinn Vinícius Júnior, sóknarmaður Evrópumeistara Real Madríd, verður ekki viðstaddur verðlaunaathöfn Gullboltans sem fram fer í París í kvöld.
ESPN greinir frá.
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano bætir því við á X-aðgangi sínum að ástæðan fyrir því sé sú að Real Madríd hafi fengið þær upplýsingar að Vinícius muni ekki vinna til Gullboltans.
Vegna þess muni enginn frá félaginu gera sér ferð til Parísar og vera viðstaddur verðlaunaafhendinguna.
🚨 BREAKING: Vinicius Jr will NOT travel to Paris as Real Madrid know he will NOT win the Ballon d’Or.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) October 28, 2024
No one from Real Madrid will attend the ceremony. No Florentino Pérez, no Vini Jr, no Carlo Ancelotti, no Jude Bellingham. pic.twitter.com/qN9PaYjmR0