Geta millifært á sig úr karlaboltanum

Þorlákur Árnason þjálfaði Þór á Akureyri áður en hann fór …
Þorlákur Árnason þjálfaði Þór á Akureyri áður en hann fór til Portúgals. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Knattspyrnuþjálfarinn Þorlákur Árnason tók við karlaliði ÍBV í síðustu viku og gerði þriggja ára samning við félagið. Hann sagði upp störfum hjá Damaiense í Portúgal stuttu á udnan. 

Fáir Íslendingar vissu hvaða félag Damaiense var þegar Þorlákur tók við kvennaliði þess í október á síðasta ári. Hann kunni vel við sig í Portúgal, þar sem árangurinn var góður í sterkri portúgalskri deild.

„Það var mjög skemmtilegt verkefni. Þetta er lítill klúbbur en gengið var mjög gott. Við enduðum í fjórða sæti, sem er besti árangurinn í sögu félagsins. Það var mjög spennandi að vera þar og í skemmtilegri deild,“ sagði Þorlákur og hélt áfram:

„Almennt eru þetta þrjú stórlið; Benfica, Braga og Sporting. Hin liðin eru í smá vandræðum með að verða atvinnumannalið og það mótar deildina þegar það eru þrjú lið í yfirburðastöðu.

Þau geta millifært á sig úr karlaboltanum á meðan hin liðin berjast í bökkum. Annars er þetta spennandi og skemmtileg deild og fótboltamenningin í Portúgal er æðisleg,“ sagði Þorlákur.

Nánar er rætt við Þorlák í Morgunblaðinu sem kemur út í fyrramálið. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka