Neymar og Messi að sameinast enn á ný?

Lionel Messi og Neymar eru góðir vinir.
Lionel Messi og Neymar eru góðir vinir. AFP/Franck Fife

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar hefur fest kaup á glæsivillu á Flórída á þrjá og hálfan milljarð íslenskra króna.

Vegna þessa er hann líklegur til að ganga í raðir bandaríska félagsins Inter Miami. Þar myndi hann hitta fyrir Lionel Messi. Eru þeir góðir vinir og fyrrverandi liðsfélagar hjá bæði Barcelona og París SG.

Hinn 32 ára gamli Neymar er í dag leikmaður Al-Hilal í Sádi-Arabíu. Hann hefur hins vegar lítið spilað með liðinu vegna meiðsla. Hann verður samningslaus í ágúst á næsta ári og ólíklegt að hann framlengi samning sinn.

The Wall Street Journal greindi frá fasteignakaupum Neymars í dag. Er eignin í Bal Harbour-Hverfinu í Miami.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka