Gott gengi Fiorentina í ítölsku A-deild karla í knattspyrnu heldur áfram en liðið vann Genoa, 1:0, í Genoa í kvöld.
Fiorentina er í fjórða sæti deildarinnar með 19 stig en Albert Guðmundsson er fjarverandi vegna meiðsla.
Albert átti frábært tímabil með Genoa á síðustu leiktíð sem vakti áhuga Fiorentina.
Sigurmark Fiorentina skoraði skoraði Robin Gosens á 72. mínútu.