Hádegisleikur dagsins í A-deildinni í fótbolta á Ítalíu var á milli Napoli og Atalanta og óhætt er að segja að gestirnir hafi haft öll völd á vellinum. Leikurinn endað með þriggja marka sigri Atalanta, 3:0.
Ademola Lookman skoraði tvívegis í fyrri hálfleik áður en Mateo Retegui skoraði í uppbótartíma seinni hálfleiks til að tryggja stigin þrjú.
Napoli er enn á toppi deildarinnar með 25 stig eftir ellefu leiki en Atalanta komst með sigrinum upp í 2. sæti með 22 stig.