Glódís og stöllur misstigu sig

Glódís Perla Viggósdóttir landsliðsfyrirliði.
Glódís Perla Viggósdóttir landsliðsfyrirliði. Ljósmynd/Alex Nicodim

Þýskalandsmeistarar Bayern München gerðu jafntefli við Frankfurt, 1:1, í efstu deild þýska fótboltans í Bæjaralandi í dag. 

Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir, sem er einnig fyrirliði Bayern, var á sínum stað í vörn Bæjaraliðsins. 

Daninn Pernille Harder kom Bayern yfir á 34. mínútu en Nicole Anyomi jafnaði metin fyrir Frankfurt á 58. 

Bayern er enn á toppnum með 19 stig eftir átta leiki, jafnmörg og Wolfsburg, sem Sveindís Jane Jónsdóttir spilar með, í öðru. Frankfurt er síðan í þriðja sæti með 17 stig, líkt og Karolína Lea Vilhjálmsdóttir og stöllur í Leverkusen. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert