Spænski knattspyrnumaðurinn José Castillejo er einn þeirra sem létust í hamfaraflóðunum í Valencia í heimalandinu fyrir helgi.
Castillejo, sem var 28 ára, var uppalinn hjá Valencia og lék með yngri liðum félagsins. Þá lék hann einnig með Paterna, Eldense, Bunol, Recambios Colon, Roda, Torre Levante og Villamarxant.
„Það hryggir okkur að þurfa að segja ykkur af fréttum af andláti Josés Castillejos. Við óskum fjölskyldu hans alls hins besta,“ sagði m.a. í yfirlýsingu Valencia.