Áfengisbann verður sett á í miðborg Mílanó tólf tímum fyrir leik Inter Mílanó og Arsenal í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu karla á morgun.
Arsenal fékk úthlutað yfir 4.300 miða á San Siro fyrir leikinn og munu því fjölmargir stuðningsmenn ferðast til Mílanóborgar.
Þeir stuðningsmenn munu hins vegar ekki geta fengið sér áfengi fyrir leikinn í miðborg Mílanó en áfengisbannið er sett til að auka öryggi vallargesta og koma í veg fyrir vitleysu í kringum leikinn.
Stuðningsmenn Arsenal-liðsins máttu heldur ekki kaupa sér áfengi fyrir leikinn gegn Atalanta í 1. umferð deildarkeppni Meistaradeildarinnar og er þetta því ekkert nýtt fyrir þeim.
Þar voru þó sérstakir staðir í Bergamo sem mátti drekka á, undir augu lögreglunnar.