Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Ragnar Sigurðsson á í viðræðum við danska félagið AGF um að taka við starfi þjálfara U17-ára liðs drengja hjá því.
Fótbolti.net greinir frá.
Ragnar var aðstoðarþjálfari karlaliðs HK á nýafstöðnu tímabili og var þar á undan þjálfari karlaliðs Fram síðari hluta tímabilsins 2023 eftir að hafa tekið við sem aðstoðarþjálfari fyrr á því ári.
Hann lék um nokkurra ára skeið fyrir danska stórveldið FC Köbenhavn og vann þar dönsku úrvalsdeildina og bikarkeppnina.