Markaregn í ensku deildinni

Khadija Shaw skoraði þrennu í gær.
Khadija Shaw skoraði þrennu í gær. AFP/Paul Ellis

María Þórisdóttir og stöllur í Brighton fengu skell gegn Arsenal í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í gær þegar liðið tapaði 5:0.

Brighton er í þriðja sæti í deildinni með 13 stig og Arsenal í fjórða með 12

Beth Mead skoraði fyrsta mark Arsenal á 13. mínútu og Carlin Ford og Frida Maanum skoruðu sitthvort markið á þremur mínútum og staðan 3:0 í hálfleik.

Lina Hurtig skoraði svo fjórða og Alessia Russo bætti fimmta við af punktinum á fimmtu mínútu uppbótartímans.

Stórsigur City

Manchester City er á toppi deildarinnar með 19 stig eftir 4:0 sigur gegn Tottenham í gær. Khadija Shaw skoraði þrennu og Lauren Hemp lagði tvö þeirra upp og lagði einnig upp mark Jill Rood. Tottenham er í sjöunda sæti með sjö stig eftir sjö leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert