Sævar bjargaði stigi fyrir Lyngby

Sævar Atli Magnússon skoraði fyrra mark Lyngby í dag.
Sævar Atli Magnússon skoraði fyrra mark Lyngby í dag. Ljósmynd/Lyngby

Sævar Atli Magnússon skoraði fyrra mark Lyngby í 2:2 jafntefli liðsins í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta gegn AaB frá Álaborg í dag.

Lyngby er í 11. og næstneðsta sæti með 10 stig eftir 15 leiki og AaB með 16 í níunda sæti.

Sævar kom Lyngby yfir eftir aðeins átta mínútur og staðan var 1:0 í hálfleik. Aalborg komst svo 2:1 yfir snemma í seinni hálfleik en Sævar fiskaði víti á 87. mínútu og Melker Widell fékk hans annað gula spjald og því rautt. Frederik Gytkjær jafnaði metin frá punktinum.

Sævar lék allan leikinn en Nóel Atli Arnórsson var ekki með AaB vegna meiðsla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert