Skrautlegur þjálfari snýr aftur til Evrópu

Jorge Sampaoli hrópar á sína menn í leiknum gegn Íslendingum …
Jorge Sampaoli hrópar á sína menn í leiknum gegn Íslendingum á HM. AFP

Jorge Sampaoli er við það að taka við karlaliði franska knattspyrnufélagsins Rennes. 

Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá en Sampaoli stýrði síðast Flamengo í Brasilíu. 

Sampaoli er skrautlegur þjálfari sem hefur þjálfað víða. Hann var með argentínska landsliðið á HM 2018 en þar fór allt úrskeiðis og var talað um að leikmenn væru farnir að stýra liðinu í staðinn fyrir hann. 

Sampaoli hefur einnig þjálfað landslið Síle, Sevilla og Marseille svo eitthvað sé nefnt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert