Barcelona og Arsenal unnu bæði stórsigra þegar 3. umferð riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu hófst með tveimur leikjum í kvöld.
Barcelona fékk austurrísku meistarana í St. Pölten í heimsókn í D-riðli og vann 7:0. Staðan var 5:0 í hálfleik eftir að heimakonur skoruðu mörkin á 13 mínútna kafla undir lok fyrri hálfleiks.
Claudia Pina skoraði tvívegis fyrir Barcelona auk þess sem Ewa Pajor, Kika Nazareth, Aitana Bonmatí, Keira Walsh og Caroline Graham Hansen skoruðu eitt mark hver.
Barcelona er á toppi riðilsins með sex stig eftir þrjá leiki.
Arsenal heimsótti þá Juventus til Tórínó í C-riðli og vann 4:0.
Frida Maanum, Stina Blackstenius, Mariona Caldentey og Caitlin Foord skoruðu mörk gestanna frá Lundúnum.
Arsenal er í öðru sæti riðilsins með sex stig eftir þrjá leiki.