Svarar ekki símtali landsliðsþjálfarans

Anthony Elanga, til hægri, fagnar ásamt Nýsjálendingnum Chris Wood.
Anthony Elanga, til hægri, fagnar ásamt Nýsjálendingnum Chris Wood. AFP/Darren Staples

Anthony Elanga, kantmaður enska knattspyrnufélagsins Nottingham Forest og sænska landsliðsins, hefur ekki svarað símtali frá þjálfara Svíþjóðar Jon Dahl Tomasson. 

Elanga, sem hefur farið vel af stað með Forest á tímabilinu, er ekki í landsliðshópi Svía. Jon Dahl hafi reynt að hringja í hann en ekkert svar borist. 

Jon Dahl, sem átti íslenskan afa, sagði jafnframt frá því að loknu síðasta landsliðsverkefni hafi Elanga farið beint aftur til Englands þegar sænski hópurinn ætlaði að hittast og borða kvöldverð saman. 

Elanga hefur verið í litlu hlutverki hjá sænska landsliðinu. Hann sat allan tímann á varamannabekknum í síðasta landsliðsverkefni. 

Svíar mæta Slóvakíu og Aserbaísjan í síðustu leikjum C-deildar Þjóðadeildar Evrópu á næstu dögum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka