Færeyjar unnu sinn fyrsta keppnisleik í yfir tvö ár með sigri á Armeníu ytra, 1:0, í 4. riðli í C-deild Þjóðadeildar Evrópu í knattspyrnu karla.
Færeyjar höfðu ekki unnið keppnisleik síðan í september árið 2022, en þá vann liðið heimasigur á Tyrkjum, 2:1.
Víkingurinn Gunnar Vatnhamar lék allan leikinn fyrir færeyska liðsins sem er komið með sex stig og er í öðru sæti í riðlinum.