Knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir var á skotskónum fyrir Al Qadisiya þegar liðið vann stórsigur gegn Al Ula í efstu deild Sádi-Arabíu á heimavelli í dag.
Leiknum lauk með 5:1-sigri Al Qadisiya en Sara Björk kom liðinu í 3:0 með marki úr vítaspyrnu á 53. mínútu.
Þetta var annað mark hennar í deildinni í fimm leikjum en Al Qadisiya er með 7 stig í 5. sætinu, fimm stigum minna en topplið Al Ahli.