Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, þurfti að fara snemma af velli vegna meiðsla í leik Íslands gegn Svartfjallalandi í þjóðadeild Evrópu í knattspyrnu.
Aron Einar virtist hafa fengið í lærið og fór meiddur af velli á 20. mínútu en þetta var fyrsti landsleikur hans í heilt ár.
Það er enn þá markalaust í Svartfjallalandi. Hægt er að fylgjast með gangi mála í beinni textalýsingu á mbl.is.