Cecilía hélt hreinu á Ítalíu

Cecilía Rán Rúnarsdóttir.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir. Eggert Jóhannesson

Cecilía Rán Rúnarsdóttir stóð vaktina í marki Inter Mílanó í 3:0-sigri liðsins gegn Sampdoria í ítölsku A-deild kvenna í knattspyrnu í dag.

Tessa Wullaert skoraði tvö mörk fyrir Inter og Lina Magull eitt. Cecilía hélt hreinu í dag en hún hefur haldið hreinu í fjórum leikjum í deildinni á tímabilinu.

Inter situr í þriðja sæti deildarinnar með 21 stig eftir tíu leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert