Karólína og stöllur tveimur stigum frá toppnum

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er í miklum toppslag með Leverkusen.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er í miklum toppslag með Leverkusen. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bayer Levekusen hafði betur gegn RB Leipzig 1:0, í efstu deild kvenna í knattspyrnu í Þýskalandi í dag. 

Levekusen er nú með 23 stig í fjórða sæti, aðeins tveimur stigum frá toppliði Wolfsburg en Eintracht Frankfurt og Bayern München eru einnig með 23 stig þegar tíu umferðir eru búnar.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var í byrunarliði Levekusen og spilaði 90 mínútur í sigrinum. Staðan var 0:0 í hálfleik en Kristin Kögel skoraði sigurmark Levekusen á 81. mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert