Brasilíumaðurinn Endrick, framherji Real Madrid, er orðaður við Southampton, sem leikur í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Sport á Spáni greinir frá en Endrick, sem er 18 ára gamall, gæti farið á lán frá Real Madrid í janúar.
Þá er hann einnig orðaður við Roma á Ítalíu og Real Valladolid á Spáni.
Endrick kom til Real Madrid í sumar frá Palmeiras í heimlandinu. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann verið þekkt nafn lengi og talinn vonarstjarna Brasilíu.