Michael Beale hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Al-Ettifaq, sem leikur í efstu deild í knattspyrnu í Sádi-Arabíu undir stjórn Stevens Gerrards. Beale og Gerrard hafa áður unnið saman.
Það gerðu þeir hjá Rangers þegar liðið vann sinn fyrsta Skotlandsmeistaratitil í tíu ár tímabilið 2020-21.
Beale fylgdi Gerrard einnig til Aston Villa í nóvember árið 2021 en tók svo við sem knattspyrnustjóri Queen’s Park Rangers sumarið 2022.
Bæði hjá Rangers og Villa var Gerrard knattspyrnustjóri og Beale honum til aðstoðar, sem verður einnig nú hjá Al-Ettifaq.
Sádiarabíska félagið rak á dögunum Dean Holden, fyrrverandi leikmann Vals og Bolton Wanderers, úr starfi aðstoðarþjálfara Gerrards.