Lionel Messi jafnaði met Bandaríkjamannsins Landons Donovans í sigri Argentínu á Perú, 1:0, í undankeppni Suður-Ameríku fyrir HM 2026 í fótbolta í Buenos Aires í nótt.
Argentína er á toppi riðilsins með 25 stig, en tíu af tólf þjóðum Suður-Ameríku eru í sama riðli.
Messi er nú kominn með 58 stoðsendingar fyrir landsliðið og jafnaði þar með met Donovans.
Messi lagði upp glæsilegt mark Lautaro Martínez á 55. mínútu leiksins.