Gerardo Martino, betur þekktur sem Tata, hefur ákveðið að hætta sem þjálfari karlaliðs Inter Miami í knattspyrnu út af persónulegum ástæðum.
Tom Bogert, sem er sérfræðingur í MLS-deildinni, greinir frá.
Martino, sem er 62 ára gamall, tók við Inter Miami í fyrrasumar og gerði liðið að deildarmeisturum í ár.
Liðið datt hins vegar út í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar og olli það miklum vonbrigðum.