Frakkinn Patrick Vieira er nýr knattspyrnustjóri ítalska félagsins Genoa.
Vieira tekur við af Alberto Gilardino sem var rekinn á dögunum en gengi liðsins hefur verið slæmt og er það í 17. sæti rétt fyrir ofan fallsæti.
Vieira hefur áður stýrt New York City, Nice, Crystal Palace og Strasbourg en á sínum tíma var hann einn besti miðjumaður heims.