Chelsea heldur áfram ótrúlegri byrjun sinni á tímabilinu en liðið vann Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta kvenna í dag, 1:0.
Liðið mætti Manchester United í dag og skoraði Guro Reiten eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 17. mínútu.
Chelsea er með fimm stiga forystu á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir átta umferðir en Manchester United situr í fimmta sætinu með 15 stig.
Chelsea hefur nú unnið alla leiki sína á tímabilinu, bæði í ensku úrvalsdeildinni sem og í Meistaradeild Evrópu.