Dagur Dan og félagar í úrslit Austurdeildarinnar

Dagur Dan Þórhallsson er að eiga flott tímabil með Orlando.
Dagur Dan Þórhallsson er að eiga flott tímabil með Orlando. Ljósmynd/Orlando City

Dagur Dan Þórhallsson og liðsfélagar hans í Orlando City eru komnir í úrslit Austurdeildarinnar í bandarísku MLS-deildinni í knattspyrnu eftir sigur á Atalanta United, 1:0, í Orlando í kvöld. 

Orlando mun mæta New York Red Bulls í úrslitum Austurdeildarinnar en sigurliðið mun fara í úrslitaleikinn um MLS-bikarinn. 

Dagur Dan var á sínum stað í byrjunarliði Orlando en hann fór af velli þegar tíu mínútur voru eftir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert