Hákon Arnar Haraldsson er mættur aftur á fótboltavöllinn en hann spilaði í dag þegar Lille vann heimasigur á Rennes, 1:0, í frönsku 1. deildinni í fótbolta.
Hákon hafði ekki spilað fótboltaleik vegna meiðsla síðan 1. september sl. þegar hann fór útaf gegn Paris SG.
Hákon kom inná á 81. mínútu leiksins og hjálpaði sínum mönnum að sigla heim sigrinum. Lille er eftir sigurinn í fjórða sæti deildarinnar með 22 stig og er í harðri baráttu um að komast í Meistaradeild Evrópu.