Napolí er komið á toppinn í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu karla eftir sigur á Roma, 1:0, í Napolí í dag.
Napolí-liðið er á toppnum með 29 stig, stigi meira en Atalanta, Fiorentina, Inter og Lazio.
Romelu Lukaku skoraði sigurmark Napolí á 54. mínútu gegn sínum gömlu félögum í Roma.