Stórglæsilegt mark Sveindísar sem breytti leiknum

Sveindís Jane Jónsdóttir.
Sveindís Jane Jónsdóttir. mbl.is/Arnþór

Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir gjörbreytti leiknum í sigri Wolfsburg á Mainz, 4:1, í 16-liða úrslitum þýska bikarsins í knattspyrnu á laugardaginn var. 

Sveindís kom inn á 72. mínútu en þá var staðan 1:0 fyrir Mainz. Á 82. mínútu jafnaði Wolfsburg metin en aðeins þremur mínútum síðar kom Sveindís bikarmeisturunum yfir með glæsimarki. 

Hún lagði síðan upp þriðja mark Wolfsburg og skoraði það fjórða. 

Myndskeið af mörkum og stoðsendingu Sveindísar má sjá hér að neðan en fyrra markið hennar er einstaklega flott. Hægt er að sjá það á fjórðu mínútu myndskeiðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert