Manchester City tapaði niður forystu á ótrúlegan hátt gegn Feyenoord frá Hollandi í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu karla í gærkvöldi.
City-liðið var þremur mörkum yfir þegar korter var eftir en þá skoraði Feyenoord þrjú mörk og jafnaði metin. Lokatölur urðu síðan 3:3.
Þetta er í fyrsta sinn sem lið Guardiola vinnur ekki eftir að hafa komist þremur mörkum yfir.
Á blaðamannafundi eftir leik var Guardiola með nokkur sár á andlitinu en hann svar spurður út í þau.
„Ég klóraði sjálfan mig með nöglinni,“ svaraði Guardiola.
„Þetta verður í lagi,“ sagði blaðamaðurinn síðan undrandi.