Sterkur sigur Brasilíu

Amanda Gutierre skoraði fyrstu tvö mörk Brasilíu.
Amanda Gutierre skoraði fyrstu tvö mörk Brasilíu. AFP/Patrick Hamilton

Brasilía vann Ástralíu, 3:1, í vináttulandsleik þjóðanna í knattspyrnu kvenna í Brisbane í Ástralíu í dag. 

Amanda Gutierres skoraði fyrstu tvö mörk Brasilíu en Gio Garbelini skoraði þriðja mark liðsins. 

Caitlin Foord skoraði þá mark Ástralíu. 

Liðin mætast aftur í Gold Coast í Queensland í Ástralíu næstkomandi sunnudag. Brasilía er í áttunda sæti heimslista FIFA en Ástralía er í 15. sæti, tveimur sætum á eftir Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka