Hneig niður og leikurinn stöðvaður

Leikmenn hópuðust að Edoardo Bove eftir að ítalski leikmaðurinn hneig …
Leikmenn hópuðust að Edoardo Bove eftir að ítalski leikmaðurinn hneig niður. Ljósmynd/Skjáskot

Leikur Fiorentina og Inter í ítölsku A-deildinni í fótbolta var stöðvaður eftir 16. mínútna leik eftir að Edoardo Bove, leikmaður Fiorentina, hneig niður á vellinum.

Bove, sem er ítalskur leikmaður, virtist hníga niður og umkringdu leikmenn og starfslið hann á vellinum. Margir leikmenn voru grátandi og greinilega um erfiðan atburð að ræða.

Albert Guðmundsson byrjaði leikinn á varamannabekk Fiorentina en allir leikmenn voru kallaðir til búningsklefa eftir að Bove var fluttur á sjúkrahús.

Ekki er vitað hvort að verði haldið áfram með leikinn á þessari stundu.

Uppfært kl. 18:26

Leikurinn fer ekki af stað af nýju en fréttir herma að ástand Bove sé betra en það virtist vera í fyrstu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert