Brasilíumaðurinn hættir hjá gríska félaginu

Brasilíumaðurinn Willian.
Brasilíumaðurinn Willian. AFP/Paul Ellis

Brasilíumaðurinn Willian hefur ákveðið að rifta samningi sínum við gríska knattspyrnufélagið Olympiacos. 

Willian gekk í raðir félagsins á frjásri sölu eftir tvö góð ár hjá Fulham í ensku úrvalsdeildinni. 

Hann lék þó aðeins ellefu leiki fyrir gríska liðið og tókst ekki að skora mark. 

Willian, sem er 36 ára gamall, á langan feril að baki en á sínum tíma gerði hann garðinn frægan með Chelsea og varð tvívegis Englandsmeistari. 

Þá lék hann einnig með Arsenal í heilt ár. Willian á að baki 70 landsleiki og níu mörk fyrir Brasilíu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert