Glódís Perla íþróttamaður ársins

Glódís Perla Viggósdóttir, íþróttamaður ársins 2024.
Glódís Perla Viggósdóttir, íþróttamaður ársins 2024. mbl.is/Ólafur Árdal

Knattspyrnukonan Glódís Perla Viggósdóttir er íþróttamaður ársins árið 2024. Er þetta í fyrsta skipti sem Glódís er kosin besti íþróttamaður ársins á Íslandi. Glódís hlaut fullt hús stiga, eða 480 stig af 480 mögulegum.

Samtök íþróttafréttamanna afhendu viðurkenninguna í 69. skipti í árlegu hófi samtakanna og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands í Hörpu. 

Glódís átti magnað ár með félagsliði sínu Bayern München í Þýskalandi, þar sem hún er fyrirliði. Glódís missti ekki úr leik er liðið varð þýskur meistari og lék gríðarlega vel.

Þá átti hún stóran þátt í að Ísland tryggði sér sæti á EM með sannfærandi sigri á Þýskalandi, 3:0, en Glódís er einnig landsliðsfyrirliði.

Hún var í 22. sæti yfir bestu leikmenn heims í kjörinu til Ballon d'Or og var efst miðvarða. Þá var hún eini miðvörðurinn sem var á lista The Guardian yfir 50 bestu leikmenn heims.

Kraftlyftingakonan Sóley Margrét Jónsdóttir varð í öðru sæti og Eygló Fanndal Sturludóttir, sem keppir í ólympískum kraftlyftingum, var þriðja.

Sóley varð heimsmeistari í kraftlyftingum með búnaði í +84 kg flokki og sló heimsmet 23 ára og yngri. Eygló varð Evrópumeistari 23 ára og yngri í -71 kg flokki og sló Norðurlandamet í fullorðinsflokki. Þá varð hún í fjórða sæti á HM fullorðinna.

Tíu efstu í kjörinu

1. Glódís Perla Viggósdóttir, knattspyrna 480
2. Sóley Margrét Jónsdóttir, kraftlyftingar 217
3. Eygló Fanndal Sturludóttir, ólympískar lyftingar 159
4. Albert Guðmundsson, knattspyrna 156
5. Anton Sveinn McKee, sund 131
6. Ómar Ingi Magnússon, handknattleikur 94
7. Snæfríður Sól Jórunnardóttir, sund 69
8. Orri Steinn Óskarsson, knattspyrna 67
9. Sveindís Jane Jónsdóttir, knattspyrna 57
10. Ásta Kristinsdóttir, fimleikar 53

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert