Íslenski knattspyrnumaðurinn Damir Muminovic skoraði eftir aðeins sex mínútur þegar DPMM gerði 1:1-jafntefli í æfingaleik við Kuching City í gær.
Damir kom til DPMM í Brúnei um áramótin frá Breiðabliki og þetta var fyrsti leikur hans með liðinu en hlé hefur verið gert á úrvalsdeildinni í Singapúr, þar sem liðið spilar, frá því í nóvember.
Fyrsti leikur liðsins í deildinni er 13. janúar gegn Lion City Sailors sem er í öðru sæti deildarinnar. DPMM er í sjötta sæti af níu liðum með 21 stig.