Messi mætti ekki í Hvíta húsið

Lionel Messi í leik með Inter Miami.
Lionel Messi í leik með Inter Miami. AFP/Chris Arjoon

Argentínski knattspyrnumaðurinn Lionel Messi var ekki viðstaddur þegar Joe Biden, fráfarandi Bandaríkjaforseti, hugðist sæma hann forsetaorðunni í Hvíta húsinu um liðna helgi.

Messi, sem er leikmaður Inter Miami í Bandaríkjunum, sagði í samtali við USA Today að hann hafi ekki getað verið viðstaddur athöfnina vegna óhentugrar tímasetningar.

Við athöfnina voru nokkrir aðrir, þeirra á meðal fyrrverandi körfuknattleiksmaðurinn Magic Johnson, sæmdir forsetaorðunni.

Argentínumaðurinn er fyrsti knattspyrnumaðurinn sem hlýtur orðuna og kvaðst Messi vonast til þess að hitta Biden í framtíðinni þar sem það hafi ekki tekist um helgina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert