Luis de la Fuente hefur skrifað undir nýjan samning við spænska knattspyrnusambandið sem felur í sér að hann mun halda áfram að þjálfa karlaliðið, sem er ríkjandi Evrópumeistari.
Undir stjórn de la Fuente varð Spánn Evrópumeistari á EM 2024 í Þýskalandi síðasta sumar og gildir nýi samningurinn fram yfir EM 2028 sem fer fram á Bretlandseyjum og Írlandi.
Spánverjinn tók við stjórnartaumunum fyrir tveimur árum og mun nú stýra liðinu á næstu tveimur stórmótum hið minnsta. HM 2026 fer fram þarnæsta sumar í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.