Brasilíski knattspyrnumaðurinn Danilo hefur fengið samningi sínum við ítalska félagið Juventus, sem oft er vísað til sem gömlu konunnar, rift eftir fimm og hálfs árs dvöl hjá því.
Juventus tilkynnti á heimasíðu sinni í dag að Danilo, sem er 33 ára varnarmaður, hafi komist að samkomulagi við félagið um að láta leiðir skilja.
Hann varð Ítalíumeistari með Juventus árið 2020 og bikarmeistari árin 2021 og 2024.
Áður hafði Danilo til að mynda leikið með Manchester City, þar sem hann varð Englandsmeistari í tvígang, bikarmeistari einu sinni og deildabikarmeistari tvisvar.