Nígeríski knattspyrnumaðurinn Victor Boniface, sóknarmaður Þýskalandsmeistara Bayer Leverkusen, er í viðræðum við sádiarabíska félagið Al-Nassr um að skipta til þess í janúarglugganum.
Xabi Alonso, knattspyrnustjóri Leverkusen, staðfesti á fréttamannafundi í dag að Boniface hafi ekki tekið þátt í æfingu með liðinu í dag vegna viðræðna.
Því muni hann ekki taka þátt í leik liðsins gegn Sparta Prag í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu annað kvöld.
Sky í Þýskalandi greinir frá því að hinn 24 ára gamli Boniface verði keyptur á 50 milljónir evra, 7,3 milljarða íslenskra króna.
Ítalski félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano segir frá því á X-aðgangi sínum að Boniface sé reiðubúinn að skipta til Al-Nassr, þar sem hann yrði til að mynda liðsfélagi Cristiano Ronaldo.