Bæjarar krækja í markvörð

Manuel Neuer fær aukna samkeppni.
Manuel Neuer fær aukna samkeppni. AFP/John Thys

Þýska knattspyrnufélagið Bayern München hefur fest kaup á þýska markverðinum Jonas Urbig frá Köln.

Urbig er 21 árs og hefur spilað tíu leiki fyrir Köln í þýsku B-deildinni á yfirstandandi tímabili.

Á síðasta tímabili lék hann með Greuther Fürth að láni frá Köln í sömu deild og þar á undan með Jahn Regensburg, einnig í B-deildinni.

Urbig er fenginn til liðs við Bæjara til þess að veita Manuel Neuer aukna samkeppni en fyrir eru ísraelski markvörðurinn Daniel Peretz og Þjóðverjinn Sven Ulreich hjá liðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert