„Það er geggjað að vera kominn hingað. Þetta er stórt félag og það er allt rosalega stórt í kringum þetta þannig að maður er kannski aðeins að reyna að venjast og taka þetta allt inn.
Mér líður mjög vel og er búinn að koma mér ágætlega fyrir. Ég er kominn með íbúð þannig að ég er bara mjög sáttur eins og staðan er núna,“ sagði knattspyrnumaðurinn Gísli Gottskálk Þórðarson, sem samdi nýverið við pólska félagið Lech Poznan.
Gísli var keyptur frá Víkingi úr Reykjavík á dágóðan skilding, hálfa milljón evra eða 73,4 milljónir íslenskra króna, og skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning. Hann er búinn að koma sér vel fyrir í Poznan.
„Þetta er rosalega stórt batterí. Þeir eru með deild með fjórum eða fimm starfsmönnum sem sjá bara um útlendingana. Ég hef varla þurft að lyfta fingri hérna. Það er allt græjað og gert.
Þeir eru ekki að gera þetta í fyrsta sinn þannig að þetta er búið að vera mjög þægilegt. Það var allt græjað mjög fljótt,“ útskýrði Gísli.
En hvers vegna varð Lech Poznan fyrir valinu?
„Það er margt sem spilar inn í. Ég hafði í grunninn góða tilfinningu fyrir þeim eftir að við [Víkingur] spiluðum við þá 2022. Þá sá maður völlinn og stuðningsmennina og sá að þetta væri greinilega risafélag.
Svo kynnist maður þjálfurum og starfsfólki, það er kynnt fyrir þér hvernig liðið spilar og þeir spila bolta sem hentar mér mjög vel, ekkert ósvipað því sem er gert hjá Víkingi. Þetta er lið sem vill vera með boltann.
Þetta er stórt lið sem berst um alla titla. Mér finnst leikstíllinn henta mér vel. Svo fyrir utan það er þetta risafélag í mjög sterkri deild.
Að geta spilað fyrir framan 30 þúsund manns á heimavelli er bara geðveikt. Mér fannst einhvern veginn allt smella svolítið vel saman þegar ég var að hugsa út í þann möguleika,“ sagði Gísli, en heimavöllur Lech Poznan tekur tæplega 43.000 manns í sæti.
Viðtalið við Gísla má lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.