Kristian á leið til Rotterdam

Kristian Nökkvi Hlynsson í leik með Ajax í október síðastliðnum.
Kristian Nökkvi Hlynsson í leik með Ajax í október síðastliðnum. AFP/Maurice van Steen

Knattspyrnumaðurinn Kristian Nökkvi Hlynsson er á leið til Spörtu frá Rotterdam að láni frá hollenska stórliðinu Ajax.

Hollenska knattspyrnutímaritið Voetbal International greinir frá.

Kristian hefur fá tækifæri fengið hjá Ajax á yfirstandandi tímabili og hefur samþykkt að fara til Spörtu, sem leikur líkt og Ajax í hollensku úrvalsdeildinni.

Þar hittir hann fyrir Nökkva Þey Þórisson, sem kom að láni frá bandaríska félaginu St. Louis City fyrr í mánuðinum, og knattspyrnustjórann Maurice Steijn, sem þjálfaði Kristian hjá Ajax.

Fjöldi liða í hollensku úrvalsdeildinni höfðu áhuga á að fá hann að láni í janúarglugganum, þeirra á meðal Twente, NEC Nijmegen og Go Ahead Eagles, en Sparta vann kapphlaupið.

Kristian mun gangast undir læknisskoðun í dag og skrifa svo undir lánssamninginn, sem inniheldur ekki kauprétt fyrir Spörtu.

Sparta er í 16. sæti af 18 liðum í deildinni, eftir 20 leiki af 34, en það er umspilssæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert