Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar hefur fengið samningi sínum við sádiarabíska félagið Al-Hilal rift eftir sannkallaða martraðardvöl og er á leið heim til Brasilíu.
Breska ríkisútvarpið greinir frá því að uppeldisfélag hans Santos eigi í viðræðum við Neymar um að hann snúi aftur og skrifi undir skammtímasamning.
Neymar var keyptur til Al-Hilal frá París SG á 77,6 milljónir punda í ágúst árið 2023. Tókst honum einungis að spila sjö leiki fyrir liðið þar sem alvarleg hnémeiðsli settu stórt strik í reikninginn.
Hann sneri aftur eftir tæpa árs fjarveru í nóvember síðastliðnum en meiddist illa aftan á læri í aðeins öðrum leik sínum eftir endurkomuna og hefur ekki spilað síðan.