Þýska knattspyrnufélagið Borussia Dortmund hefur hafið viðræður við Ralf Rangnick, þjálfara austurríska karlalandsliðsins, í því skyni að reyna að sannfæra hann um að taka við sem stjóri karlaliðs félagsins.
Þjóðverjinn Rangnick hefur þjálfað Austurríki með góðum árangri í að verða þrjú ár. Þar á undan var hann bráðabirgðastjóri karlaliðs Manchester United tímabilið 2021-22.
Sky í Þýskalandi greinir frá því að Dortmund sé áhugasamt um að ráða Rangnick. Þýska stórliðið er í þjálfaraleit eftir að Nuri Sahin var vikið frá störfum fyrr í mánuðinum.