Slot hvílir stjörnurnar á morgun

Mohamed Salah og Virgil van Dijk verða ekki með gegn …
Mohamed Salah og Virgil van Dijk verða ekki með gegn PSV annað kvöld. AFP/Adrian Dennis

Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, gefur mörgum lykilmanna sinna frí annað kvöld þegar enska toppliðið sækir PSV Eindhoven heim til Hollands í lokaumferð deildarkeppni Meistaradeildar karla.

Virgil van Dijk og Ryan Gravenberch fara ekki með liðinu  til heimalands síns og þeir Mohamed Salah, Trent Alexander-Arnold, Ibrahima Konaté, Alexis Mac Allister, Dominik Szobozlai, Luis Díaz og Alisson Becker verða einnig allir eftir heima í Liverpool.

Margir ungir leikmenn fá því að spreyta sig gegn hollenska toppliðinu en nákvæmlega ekkert er í húfi fyrir Liverpool sem er efst í Meistaradeildinni, hefur unnið alla sjö leiki sína og er með 21 stig ásamt markatölunni 15:2.

Aðeins Barcelona getur ýtt Liverpool úr efsta sætinu, en það skiptir ekki máli því tvö efstu liðin fara saman í flokk þegar dregið verður til sextán liða úrslitanna í keppninni.

Þetta er hins vegar vatn á myllu PSV sem er í hörðum slag um að komast áfram. Liðið er með 11 stig í 19. sæti en 24 efstu liðin fara áfram. PSV er þremur stigum á undan Manchester City sem er í 25. sætinu fyrir lokaumferðina.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert